Fjarðagusa
Fjarðagusa
Þjónustur
Það eru engar þjónustur til að sýnaGUSA
Teymi
Um
Gusa er hlý og nærandi upplifun þar sem við gefum líkama og huga rými til að hægja á og njóta augnabliksins. Gusan samanstendur af þremur lotum, um 12–15 mínútum hverri, þar sem hiti, ilmolíur og tónlist vinna saman að rólegri og notalegri upplifun.
Á milli lota förum við út og gefum líkamanum tækifæri til að kælast og anda. Við getum notið ferska loftsins, farið í kalt kar eða einfaldlega leyft vindinum að leika um okkur. Þar gefst líka tækifæri til að drekka vatn, fá sér ávexti eða létt snarl, spjalla saman eða einfaldlega njóta kyrrðarinnar.
Fjarðagusa býður upp á gusutíma í sundlauginni á Eskifirði. Verð fyrir stakan tíma: 3.500 kr.
Hægt er að greiða með Aur: 661-8240
eða með millifærslu: Rnr. 0511 – 14 – 016470 kt.030801-3690
Afbóka þarf með að minnsta kosti 12 klukkustunda fyrirvara. Skemmri fyrirvari getur leitt til gjaldtöku ef ekki tekst að nýta bossaplássið.
ATH: Óheimilt að nota sturtur sundlaugarinnar eftir gusuna.
Umsagnir
- Sæunn·
Frábær gusutími hjá Eygló, góð tónlist og góð stemming.. get ekki beðið að fara aftur!
- Magðalena Sif·
Dásamlegur andi og gusa hjá Eygló, fullkomin kvöldstund 🙏🏻 hlakka til að koma aftur og aftur
- Sara Björg Kristjánsdóttir·
Æðislegur gusutími hjá Eygló - geggjuð tónlist og stemming frábær, og umfram allt yndisleg orka! Kem aftur!

